Websmith stjórnhluti - innskráning





Almenn þjónusta

Þjónusta Netheima er sniðin að mismunandi þörfum fyrirtækja og stofnana og fer eftir stærð þeirra og umfangi. Í öllum tilfellum er þó höfuðáhersla lögð á rekstraröryggi og ráðdeild í útgjöldum. Verðlagning þjónustu byggist á umfangi hennar, en á það er bent að með þjónustusamningum við Netheima geta rekstraraðilar tryggt sér verulegan afslátt af útseldri vinnu.

Helstu þjónustuþættir við tölvukerfi eru:

  • Viðgerðir
  • Eftirlit með tölvukerfum
  • Fyrirbyggjandi aðgerðir
  • Regluleg afritataka
  • Skráning og kortlagning tölvukerfa
  • Neyðarþjónusta
  • Neyðaráætlanir
  • Stjórnun gagnagrunna
  • Vírusvarnir
  • Eldveggir
  • Fjarvinnslutengingar
  • Innleiðing upplýsinga- og öryggiskerfa


Þjónusta við notendur og fræðsla
NETHEIMAR kappkosta að sinna viðskiptavinum sínum með notendaþjónustu hvort heldur sem er innan fyrirtækis, í síma, með námskeiðum eða öðrum hætti. Dæmi um notendaþjónustu eru: Vél- og hugbúnaðarvandamál, fræðsla vegna innleiðingar á nýjum vél- eða hugbúnaði, sérsniðin námskeið, námskeið í notkun tölvukerfa, þjálfun nýrra starfsmanna.

 



Til baka!